Snæfellsstúlkur leika til úrslita á Ljósanæturmótinu

Já þær fóru heldur betur vel af stað, unnu tvo leiki og fóru beint í úrslitaleikinn gegn Haukum sem verður á fimmtudaginn. Haukar og Snæfell áttu að mætast á fimmtudag í síðasta leiknum þeirra fyrir úrslitaleikina en þar sem úrslit leikjanna fóru á þann veg að það er þegar ljóst að Haukar og Snæfell mætast í úrlsitaleiknum þá var ákveðið að fella niður fyrri leikinn og láta liðin spila aðeins einn leik (úrslitaleikinn) frekar en tvo þar sem annar skipti engu máli. KR og Njarðvík mætast svo í leiknum um 3-4 sætið en annar leikur þeirra var einnig felldur niður.