Snæfell með stórsigur á KR í fyrsta heimaleik

KR mættu vígreifir í Hólminn með Emil Þór fyrverandi leikmann Snæfells innanborðs en án Edward Horton sem á við meiðsli að stríða frá síðasta leik. Bæði lið höfðu sigra í sínum leikjum í fyrstu umferð og ljóst að þetta væri leikur annarar umferðar. Þar fór svo að Snæfell hafði undirtökin allann leikinn og leiddi með 20 stigum í hálfleik og það var meðalmunurinn út leikinn sem Snæfell vann 116-100 og Brandon Cotton með 38 stig. Hægt er að segja að svona áttu menn ekki von á KR í Hólminum……