Snæfellsstúlkur kláruðu Hauka.

Haukastúlkur byrjuðu ferskari og virtust ætla að taka völdin á vellinum strax og Snæfell var að brjóta og voru seinar í vörninni og Haukar sóttu áþær og komust í 6-13. Alda Leif setti þá eitt stykki ískaldann þrist í 9-13 og Snæfell jafnaði svo strax 13-13. Allt annað Snæfellslið sást svo seinni hluta fyrsta fjórðungs sem komust í 21-13 sem var staðan eftir fyrsta hluta og voru gríðalega öflugar. Haukar náðu ekki upp dampi og skoruðu ekki í þrjár og hálfa mínútu gegn sterkari vörn Snæfells og sóknir runnu út í sandinn…..