Ósigur í DHL höllinni

Snæfell mætti KR í Iceland express deild kvenna. Leikurinn endaði 79-72 og stóðu Snæfellsstúlkur í KRingum en náðu ekki að klára dæmið. Einungis 8 stúlkur voru á skýrslu og  er eins og þeim fari fækkandi með hverjum leik. Þetta er þó allt rakið til meiðsla og þess konar kvilla. Stúlkurnar átta stóðu sig þó ágætlega og voru yfir 13-16 eftir fyrsta hluta. Staðan í hálfleik var 36-34 og voru KR stúlkur rétt að komast yfir þarna.