Tap í Seljaskóla,

Snæfell tapaði öðrum leik sínum með litlum mun í Seljaskóla gegn ÍR 85-80. Snæfell var yfir 35-19 eftir fyrsta hluta og virtist það of þægileg staða fyrir Snæfell sem náðu sér ekki upp aftur þegar ÍR sótti á og voru yfir í hálfleik 48-46. Brekkan varð flughál og Snæfellingar á sléttum spariskóm það sem eftir lifði leiks og náðu ekki í skottið á ÍR til að komast inn í leikinn og ÍR sýndi að leikurinn átti eftir þrjá leikhluta sem þurfti að klára og fengu að launum 2 stig úr leiknum.