Marquis Sheldon Hall ráðinn til Snæfells

Snæfell hafa ráðið leikstjórnandann Marquis Sheldon Hall og mun hann leika með þeim gegn ÍR-ingum annað kvöld í Seljaskóla þegar liðin mætast klukkan 19:15.  Marquis er um 180 cm og lék hann með LeHigh háskólanum í bandaríkjunum.  Marquis lék á síðasta tímabili með Aalborg í dönsku deildinni þar sem hann þótti standa sig gríðarlega vel og var eftirsóttur.