Íþróttaviðburður ársins, happadrætti og vinningaskrá

Nú er komið að því! Leikið verður í íslandsmeistaramóti 3ju og 4ju deilda í blaki helgina 29. – 30. okt í íþróttamiðstöð Stykkishólms. Hingað eru að koma 24 lið af blakkonum til að keppa á laugardag og sunnudag. Mótið hefst kl 08:00 á lau og er spilað til 20:00 um kvöldið og aftur frá 08:00 á sunnudag.  Við vonum að Hólmarar gefi sér tíma til að kíkja á mótið og fá sér kaffi og meððí í litlu sjoppunni okkar og styrkja þannig deildina okkar.