Snæfellsstúlkur létu ekki Hamra sig niður.

Snæfell byrjaði á ferskari endanum og áttu fyrstu fjögur stigin og Hamar vaknaði á 6:53 og settu sína fyrstu körfu og komust svo í 7-9 eldhressar. Stúlkurnar voru farnar að hitna í báðum liðum en Snæfell strögglaði þó meira í sínum aðgerðum og fengu Hamarsstúlkur oft körfu og villu að auki og kláruðu þau skot. Snæfell hékk þó ekki langt undan og gekk erfiðlega að koma niður auðveldum skotum á meðan Hamar nýtti sín betur hinumegin. Staðan var 15-20 fyrir Hamar eftir fyrsta hluta……