Enginn norðankæla, heimamenn sigldu lygnan sjó.

Snæfell tók á móti Njarðvík í Stykkishólmi í Iceland Express deild karla og fyrir leikinn voru heimamenn í 8. Sæti en Njarðvík í 7. Sæti og bæði lið með 4 stig eftir fjóra leiki. Það fór svo að Snæfell keyrði leikinn fljótt upp og sköpuðu sér forystu 35-14 eftir fyrsta hluta sem þeir létu aldrei af hendi, höfðu greinilega lært af ÍR leiknum, þrátt fyrir að Njarðvíkingar kæmu með heiðalegar tilraunir til að minnka muninn sem varð 30 stig í fjórða hluta. Einfaldlega of mikið of seint og Snæfell sigraði örugglega 89-67 í leik sem varð aldrei spennandi að ráði……