Tap í Njarðvík.

Stúlkurnar héldu til Njarðvíkur og biðu þar lægri hlut 90-80 í sínum fimmta deildarleik. Liðið er nú í 6. sæti og er með 4 stig líkt og Fjölnir og Valur. Snæfell náði forystu í fyrsta leikhluta en Njaðrvík komst yfir áður honum lauk 28-24 og staðan í hálfleik 52-46 og jafn leikur í gangi þrátt fyrir að Njarðvík hefði skrefið framar. Snæfell náði að jafna 56-56 en Njarðvík hélt forystu og Snæfell klóraði sig nær 68-67 en ekki komust þær nær en það í lok leiksins og Njarðvík sigraði 90-80. Hildur Sigurðardóttir var með 28 stig 7 fráköst og 6 stoðsendingar og næst henni Kieraah Marlow með 23 stig, 15 fráköst, 7 stoðsendingar.