Ólafur kom, sá og sigraði og reið svo með björgum fram.
Það var Ólafur Torfason sem kláraði leikinn fyrir Snæfell 94-95 í Lengjubikarnum gegn Stjörnunni í Garðabæ. Ólafur setti niður fyrra vítið í stöðunni 94-94 og kom Snæfelli stigi yfir en það seinna geigaði sem skipti engu máli þar sem leiktíminn var runninn út og Stjörnumenn sem horfðu til framlengingar sáu þá möguleika renna frá sér.
Tags: Fréttir