Slakur leikur gegn Keflavík

Keflvíkingar mættu með sex fyrstu stig leiksins og komust síðar í 5-12 þar sem Jarryd Cole gerði 10 stig og liðsfélagar Quincy Hankins-Cole voru orðnir þreyttir á því að grátbiðja sinn mann um að sína smá lit í vörninni. Ingi Þór Steinþórsson tók við þetta leikhlé fyrir Hólmara og smellti Quincy á bekkinn og þá hresstust hans menn nokkuð. Sveinn Arnar Davíðsson átti fína spretti hjá Snæfell sem snöggtum minnkaði muninn í 17-19. Quincy kom inn á völlinn að nýju undir lok leikhlutans og afrekaði það að setja niður síðustu stig hans og koma Snæfell í 25-23 og þannig stóðu leikar að leikhlutanum loknum……

Umfjöllun af Karfan.is

Keflavík vann annan spennuslag gegn Snæfell