Frábær lokasprettur gegn Hamri

Snæfellsstúlkur gerðu góða ferð í Hveragerði og tóku loks útisigur 68-71. Eftir að hafa verið undir allann leikinn þá stálu þær sigrinum í lokafjórðungnum. Staðan eftir þriðja hluta var 60-45 fyrir Hamar en Snæfell skoraði þá 26 stig gegn 8 Hamars og sigur í höfn. Gríðalega sterkt hjá liðinum sem hefur ekki náð flugi í síðustu útileikjum en margt að smella saman.


Katherine Graham gerði 14 stig og gaf 6 stoðsendingar í sínum fyrsta leik með Hamri en Samantha Murphy var þó stigahæst með 41 stig og 7 fráköst. Hjá sigurliði Snæfells var Hildur Sigurðardóttir með 20 stig og 6 fráköst og Helga Hjördís Björgvinsdóttir bætti við 18 stigum og 7 fráköstum.