Heimavöllurinn orðin gryfja og Keflavík lá.

Snæfell eftir að hafa jafnað 5-5 leiddu allann leikin gegn Keflavík í Iceland express deild kvenna. Þær voru yfir í hálfleik 37-24 og létu ekki áhlaup og pressu Keflavíkur sem ágerðust með hverri mínútunni í seinni hálfleik á sig fá og lönduðu feiknar sterkum sigri 68-61 þar sem liðsheildin taldi sterkt. Snæfell t.a.m. með 46 fráköst gegn 33 Keflavíkur og voru einfaldlega sterkari aðilinn allann leikinn.

Jaleesa Butler setti fyrstu þrjú stig leiksins en Snæfell jafnaði 5-5 og komust svo í 11-5 með því að taka fráköstin og stela boltanum frá Keflvíkingum sem voru mislagðar hendur í upphafi…..

[mynd]