Helgafell sigraði í hópa og firmakeppni kkd Snæfells 2011

Hin árlega hópa og firmakeppni Snæfells var haldin þann 29. desember.

Í ár voru 6 lið skráð til leiks en við byrjuðum mjög seint að auglýsa og safna liðum og er það klárt mál að við verðum að gera betur á næsta ári. Við erum mjög þákklátir fyrir þau lið sem komu og skemmtu sér og öðrum. Fyrirkomulagið var þannig að allir spiluðu við alla og voru margir leikirnir mjög skemmtilegir. Það var gleði sem einkenndi mótið og mikil hittni hjá Inga Þór þjálfara Snæfells, hann átti hverja þriggja stiga körfuna á fætur annari…….