Óskar Hjartarson í Snæfell

Eftir fréttir um að Egill Egilsson hafi fært sig yfir í Skallagrím og að Guðni Sumarliðason hafi yfirgefið okkur einnig og haldið til meiri menntunar þá hefur Óskar Hjartarson ákveðið að uppfæra sig innan körfuboltans í Stykkishólmi og færa sig úr 2. deildar liði Mostra yfir í Iceland express deildar lið Snæfells. Óskar verður án efa styrkur fyrir Snæfell og er hann alls ekki ókunnugur hópnum, uppalinn Snæfellingurinn.

Óskar hefur spilað með Mostra og verið einn af þeirra burðarásum en í tölum hefur hann verið framlagshæstur að meðaltali 26.8 stig, 19.8 stig, 8.2 fráköst og 3.7 stoðsendingar að meðaltali.