Valur tók sigurinn suður.

Valsstúlkur mættu í Hólminn til fundar við Snæfell í Iceland express deild kvenna en þær ætla að líta þar við á næsta laugardag einnig í Poweradebikarnum. Berglind Gunnarsdóttir var komin í búning hjá Snæfelli og er óðum að braggast. Valsstúlkur voru með viðbót við lið sitt núna eftir áramót en Lacey Katrice Simpson var komin til liðs við þær og Kristín Óladóttir var aftur komin í búning eftir meiðsli.

Fyrsti hluti var jafn og hressandi þar sem Snæfell byrjaði heldur skipulagðari og voru strax komnar yfir 12-6. Valsstúlkur komust þó inní leikinn smátt og smátt og jöfnuðu 16-16 og voru svo komnar yfir 18-25 með flottum leik….

Valsstúlkur mættu í Hólminn til fundar við Snæfell í Iceland express deild kvenna en þær ætla að líta þar við á næsta laugardag einnig í Poweradebikarnum. Berglind Gunnarsdóttir var komin í búning hjá Snæfelli og er óðum að braggast. Valsstúlkur voru með viðbót við lið sitt núna eftir áramót en Lacey Katrice Simpson var komin til liðs við þær og Kristín Óladóttir var aftur komin í búning eftir meiðsli.

Byrjunarliðin:
Snæfell: Hildur Björg, Hildur Sigurðard, Kieraah Marlow, Helga Hjördís, Alda Leif.
Valur: Berglind Karen, Guðbjörg Sverrisd, Melissa Leichlitner, Kristrún Sigrjónsd, María Ben.