Snæfell skákaði Stjörnunni í beinni

Snæfellsstrákarnir fylgdu fordæmi stúlknanna og komust áfram í 8 liða úrslit Poweradebikarsins eftir að hafa lagt Stjörnuna 68-73. Leikurinn var svo sem ekkert augnayndi en mikið um mistök beggja liða en sterkari vörn Snæfells og klaufalegur sóknarleikur Stjörnunnar skóp muninn í öðrum leikhluta og staðan í hálfleik 30-33. Leikurinn hélt áfram á svipuðu nótum í seinni hálfleik og Snæfell komst í 44-51 eftir þriðja hluta en Pálmi Freyr var vítamínsprauta liðsins á góðum kafla. Snæfell komst þá í fjórða hluta í 10 – 12 stiga forystu en rétt undir lokin nálgaðist Stjarnan en of seint og Snæfell komst áfram…..

[mynd]