KR hefndi í Hólminum í hörkuleik

KR mætti úr veðurofsanum í Hólminn en þar var rjómablíða að vanda. Snæfellsstúlkur tóku þar á móti þeim og voru fyrir leikinn í 5. sætinu með 16 stig en KR í 4. með 18 stig.

KR byrjaði yfir 0-6 og Snæfell strögglaði í sóknum sínum svo að Ingi Þór splæsti í leikhlé í stöðunni 2-6. Það virtist gefa Snæfelli spark og Helga Hjördís setti strax þrjú stig og meira líf færðist í leikinn og Snæfell stigi á eftir 7-8. Erica Prosser setti einn sjóðheitann þrist og staðan 7-13 fyrir KR og þær höfðu skrefin framar Snæfelli fram undir lok hlutans þegar staðan var 14-17 en Alda Leif setti þá einn á flautunni og………