Auðvelt hjá Snæfellsstúlkum sem eru komnar í undanúrslit.

Snæfell, Haukar og Stjarnan eru komin í undanúrslit kvenna í Poweradebikarkeppninni en Snæfell var rétt í þessu að skella Fjölni í Dalhúsum. Snæfell gerði 28 stig strax í fyrsta leikhluta og settu tóninn fyrir því sem koma skyldi. Lokatölur reyndust 45-90 Snæfell í vil þar sem Kieraah Marlow, Hildur Sigurðardóttir og Alda Leif Jónsdóttir fóru fyrir gestunum.