Snæfell dottið úr bikarnum eftir tvíframlengdann leik

KR sló Snæfell út eftir tvíframlengdann leik 111-104. Staðan eftir fjóra hluta var 83-83. Joshua Brown skoraði 49 stig fyrir KR og fékk að skora þar sem hann vildi. Josh skoraði ævintýralega körfu til að jafna 91-91 en Snæfell var þremur stigum yfir og vörðust ekki skotinu nægilega og önnur framlenging varð raunin.

KR fengu að sjá „nýja“ erlenda leikmanninn sem þeir voru eitthvað hræddir við á heimasíðu sinni en þar staðfesta þeir að Snæfell yrðu komnir með nýjann leikmann.