Taka tvö: Nú lenti það okkar megin, kvittum fyrir það.

Það voru Snæfellingar sem tóku mikilvæg tvö stig í deildinni gegn KR eftir sigur í vesturbænum 93-94. Það má segja að hefnt hafi verið fyrir tapið í bikarnum en strákarnir áttu þennan skilið og hafa nú sigrað KR innbyrðis í deildinni 2-0. Með þessum leik töldum liggja fjórir sigrar af fjórum í deildinni og Snæfell farið úr 10. sæti upp í það 6. sem stendur, en þrír leikir eru í sömu umferð á morgun föstudag. Þetta gefur vísbendingar um að liðið stilli sig saman smátt og smátt en eins og við vitum þá geta þeir unnið öll lið og þarf ekkert að splæsa bestu dögunum í það. Liðið á uppleið og KR lá í kvöld. Let´s go!

-sbh-

 

Texti og umfjöllun af vef Karfan.is

KR byrjaði leikinn ögn betur og með flottum varnarleik komust þeir i 6-2 eftir þrjár mínútur.  Snæfellingar voru að taka erfið skot sem féllu ekki með þeim.  Þegar Snæfell fann opna manninn fyrir utan og setti niður 6 stig í röð komust þeir yfir í fyrsta sinn, 10-12.  Liðin skiptust á stigum næstu mínúturnar og þegar þrjár mínútur voru eftir af leikhlutanum leiddi Snæfell, 14-16.  KR átti……..

[mynd]

 

Texti og umfjöllun af vef Karfan.is

 

Snæfell tókst það sem margir töldu ekki hægt þegar þeir hefndu fyrir bikarleikinn á dögunum og stálu 2 stigum í DHL höllinni í kvöld.  KR leiddi lengi framan af leik og höfðu mest 14 stiga forskot á tímabili.  Snæfell var þó aldrei langt undan og komu sér inní leikinn með góðum kafla í upphafi þriðja leikhluta og svo aftur í upphafi fjórða leikhluta þar sem þeir náðu sínu stærsta forskoti í leiknum, 6 stig. 

 

Snæfell hafði svo betur á lokakaflanum þar sem segja má að lykilmenn KR hafi hreinlega brugðist en þeir urðu sekir um klaufaleg mistök á lokakaflanum.  Snæfell vann því með einu stigi, 93-94, og koma sér vel fyrir í miðjumoði deildarinnar með 14 stig, aðeins tveimur stigum frá KR sem sitja í öðru sæti ásamt þremur öðrum liðum með 16 stig.

 

Stigahæstur í liði Snæfells var Quincy Hankins-Cole með 27 stig og 7 fráköst en næstir voru það Jón Ólafur Jónsson með 22 stig og 9 fráköst og Marquis Hall með 17 stig og 5 stoðsendingar.  Í liði KR var Joshua Brown stigahæstur með 23 stig og 7 fráköst en næstir voru það Robert Ferguson með 17 stig og 14 fráköst og Finnur Atli Magnússon með 16 stig og 9 fráköst. 

 

KR byrjaði leikinn ögn betur og með flottum varnarleik komust þeir i 6-2 eftir þrjár mínútur.  Snæfellingar voru að taka erfið skot sem féllu ekki með þeim.  Þegar Snæfell fann opna manninn fyrir utan og setti niður 6 stig í röð komust þeir yfir í fyrsta sinn, 10-12.  Liðin skiptust á stigum næstu mínúturnar og þegar þrjár mínútur voru eftir af leikhlutanum leiddi Snæfell, 14-16.  KR átti góðan kafla á lokamínútunum og setti 8 stig gegn tveimur stigum, 22-18.  Snæfell átti hins vegar lokaorðið þegar Hafþór Ingi Gunnarsson setti flautukörfu og minnkaði muninn í 2 stig, 22-20.

 

KR byrjaði annan leikhluta af krafti og þegar þrjár mínútur voru liðnar af leikhlutanum höfðu þeir náð forskotinu upp í 7 stig, 32-25.  Stigin dreifðust vel hjá heimamönnum en þá höfðu 8 leikmenn skorað fyrir KR.  Á meðan opin skot voru að geiga hjá Snæfell fór allt ofaní hjá heimamönnum, Ingi Þór fékk nóg og tók leikhlé fyrir Snæfell þegar leikhlutinn var hálfnaður, 42-29.  

 

Snæfell tókst að rétta sinn hlut þegar leið á leikhlutan og þegar 3 mínútur voru eftir af fyrri hálfleik munaði 8 stigum, 44-36.  KR virtist þó alltaf finna auðveldu leiðina að körfunni á meðan sóknarleikur Snæfells átti í mun meiri erfiðleikum með að finna glufur á varnarleik KR. Snæfell tókst því ekki að minnka muninn meira en svo í fyrri hálfleik og KR leiddi með 11 stigum, 53-42.

 

Stigahæstur í hálfleik fyrir KR var Robert Ferguson með 13 stig,Dejan Sencanski, Finnur Atli Magnússon og Joshua Brown allir með 9 stig. Hjá Snæfell var troðslumaskínan Quincy Hankins-Cole stigahæstur með 15 stig en næstir voru Hafþór Ingi Gunnarsson með 7 stig og Jón Ólafur Jónsson með 6 stig. 

 

[mynd]

Snæfell vann sig hægt og rólega inní leikinn í þriðja leikhluta.  Sóknarleikur gestana fór á blússandi siglingu og þegar þriðji leikhlut var rétt rúmlega hálfnaður höfðu þeir skorað 14 stig gegn 8 stigum KR.  Hrafn Kristjánsson tók þá leikhlé fyrir KR, 61-56.  Varnarleikur Snæfells í þriðja leikhluta var til fyrirmyndar og það leið ekki á löngu þar til þeir höfðu jafnað leikinn, 64-64, þegar tvær og hálf mínúta var eftir af leikhlutanum.  Ingi Þór Steinþórsson tók leikhlé fyrir Snæfell í næstu sókn. 

 

Robert Ferguson fékk mikið högg á hnéið stuttu seinna og þurfti að yfirgefa völlinn til þess að fá aðhlynningu frá sjúkraþjálfara liðsins en hann kom þó aftur inná í byrjun fjórða leikhluta.  Marquis Hall fékk sína fjórðu villu á lokasekúndum þriðja leikhluta og í kjölfarið kom Hreggviður Magnússon KR yfir aftur af vítalínunni, 71-70, og þannig stóðu tölur þegar einn leikhluti var eftir. 

 

Snæfell byrjaði fjórða leikhluta mjög vel og fengu nokkur galopin tækifæri.  Þar á meðal var glæsileg troðsla frá Quincy Hankins-Cole sem vakti mikla lukku viðstaddra.  Þegar tæplega þrjár mínútur voru liðnar af fjórða leikhluta höfðu Snæfellingar náð 6 stiga forskoti á KR, 73-79.  Hrafn Kristjánsson tók því leikhlé stuttu seinna en þá höfðu Snæfell ennþá 6 stiga forskot, 75-81.  Það var eins og allt í einu hefði verið kveikt á ofnunum í DHL höllinni þegar fjórði leikhlut var hálfnaður. 

 

Martin Hermansson setti glæsilegan þrist með Hankins-Cole í andlitinu og stuðningsmenn KR tóku við sér.  Liðin skiptust á að setja hverja þriggja stiga körfuna á fætur annari og spennan í húsinu magnaðist með hverju skotinu.  Jón Ólafur Jónsson fékk sína fimmtu villu stuttu seinna og í sömu andrá fór Quincy Hankins-Cole útaf vegna meiðsla í fæti.  Þegar þrjár mínútur voru eftir höfðu KR-ingar minnkað muninn niður í 2 stig, 87-89.  Það var svo viðeigandi að Joshua Brown kom KR yfir af vítalínunni þegar tvær mínútur voru eftir, 90-89.  

 

Quincy Hankins-Cole kom þá aftur inná og kom Snæfell aftur yfir með hörku troði, 90-91. Þegar 50 sekúndur voru eftir tók Hrafn Kristjánsson leikhlé fyrir KR en þá höfðu KR hent boltanum frá sér eftir fremur klaufalega sókn.  Snæfell svaraði í sömu mynt og henti líka frá sér boltanum í næstu sókn.  Marquis Hall kórónaði svo góðan leik sinn í leiknum með því að stela boltanum af Joshua Brown þegar 11 sekúndur voru eftir af leiknum og þar með tryggja Snæfell sigurinn. 

 

KR braut fljótt og sendi Ólaf Torfason á línuna sem nýtti annað vítið, 90-94.  Hreggviður Magnússon átti svo seinasta skot leiksins sem var langt fyrir aftan miðju og ótrúlegt en satt þá söng það í netinu á sömu sekúndu og flautan gall.  Eins stig sigur Snæfells því staðreynd en minna mátti ekki muna, 93-94.

 

Tölfræði og stigaskor af vef KKÍ

Viðtal við Inga Þór eftir leik af Karfan.is

Viðtal við Hrafn Kristjánsson eftir leik af Karfan.is

 

Umfjöllun: Gísli Ólafsson af Karfan.is / [email protected]

Myndir: Karfan.is og Þorsteinn Eyþórsson

Marquis Hall stj
</p>
</div>
            <div class= Deila