Snæfellsstúlkur með flottann sigur að Hlíðarenda

Snæfellsstúlkur voru mikið betra liðið í leik á móti Val í Vodafonehöllinni og sigruðu 82-88 en Valur fóru að nálgast undir lokiin en of seint í leiknum til að breyta einhverju. Liðsheildin skilaði þessu í dag en fimm leikmenn skoruðu 12 stig eða meira. Snæfell komst mest í 21 stigs mun en Valur náði aðeins 2 stiga forystu í leiknum þegar þær skoruðu fyrstu stigin 2-0 en Hildur Sigurðardóttir smellti þá þremur og Snæfell litu ekki til baka eftir það.

Jordan Murphree var stigahæst með 22 stig en næst henni var Kieraah Marlow með 21 stig. Hildur Sigurðardóttir 16. Hildur Björg og Helga Hjördís 12 stig hvor. Björg Guðrún 3. Alda Leif 2. Ellen Alfa 0. Sara Mjöll 0. Aníta Rún 0.

 

Umfjöllun af Karfan.is

Tölfræði leiksins