Drengjaflokkur rúllar af stað

Strákarnir í drengjaflokk hefja tímabilið á Íslandsmótinu gegn Haukum í Hafnarfirði klukkan 20:45 í kvöld þriðjudaginn 2.október að Ásvöllum. Leikið er í tveimur riðlum í drengjaflokki, A og B riðlum. Strákarnir eru í riðli með Haukum, Fjölni, KR, Keflavík, Breiðablik, Stjörnunni og Grindavík. Leikið er heima og heiman á Ísandsmótinu og leikirnir iðulega á þriðjudögum.  Það er Gísli Pálsson sem er þjálfari liðsins og verður gaman að fylgjast með strákunum í vetur. Við hvetjum alla til að mæta á leikina hjá strákunum og styðja við bakið á þeim í sínum verkefnum.
 
Unglingaráð