Sigur í undanúrslitaleik Lengjubikarsins

Grindavík byrjaði af krafti og komust í 2-14 áður en Snæfell náði að svara nokkru en þá komu þristar frá Sveini Arnari og Pálma Frey. Jóhann Ólafsson var virkilega sprækur kominnmeð 10 stig. Grindavík náði að halda sig 10 stigum frá Snæfelli en Jay Threatt stjórnaði sínu liði vel og staðan eftir fyrst hluta var 22-26 og Snæfellingar aðeins að stilla sig af.

Snæfell komst nær 28-29 og jafnaði svo 32-32 og voru öflugir í vörninni og spiluðu hratt á Grindavík sem tóku leikhlé þegar Snæfell komst yfir 34-32. Jafnt var 42-42 og svo 47-47 en Jay Threatt og Jón Ólafur voru að leika vel fyrir Snæfell og Sigurður Þorsteins og Aaron Broussard

[mynd]

 

Byrjunarlið.
Snæfell: Jón Ólafur, Asim McQueen, Sveinn Arnar, Hafþór Ingi, Jay Threatt.
Grindavík: Jóhann Árni, Aaron Broussard, Samuel Zeglinski, Þorleifur Ólafsson, Sigurður Gunnar.

Grindavík byrjaði af krafti og komust í 2-14 áður en Snæfell náði að svara nokkru en þá komu þristar frá Sveini Arnari og Pálma Frey. Jóhann Ólafsson var virkilega sprækur kominnmeð 10 stig. Grindavík náði að halda sig 10 stigum frá Snæfelli en Jay Threatt stjórnaði sínu liði vel og staðan eftir fyrst hluta var 22-26 og Snæfellingar aðeins að stilla sig af.

Snæfell komst nær 28-29 og jafnaði svo 32-32 og voru öflugir í vörninni og spiluðu hratt á Grindavík sem tóku leikhlé þegar Snæfell komst yfir 34-32. Jafnt var 42-42 og svo 47-47 en Jay Threatt og Jón Ólafur voru að leika vel fyrir Snæfell og Sigurður Þorsteins og Aaron Broussard voru að stimpla sig betur inn fyrir Grindavík. Staðan var 51-55 fyrir Grindavík í hálfleik en hjá þeim var Aaron Broussard með 14 stig og 9 fraköst en þeir voru allir með 12 stig, Jóhann Árni, Samuel Zeglinski og Sigurður Þorsteins. Í liði Snæfells var Jay Threatt með 16 stig og Jón Ólafur með 10 stig.

 

[mynd]

 

Grindavík byrjaði betur í upphafi þriðja hluta með Samuel Zeglinski í fararbroddi 51-59 en Snæfell var velvakandi, smurði vélina strax og það ringdi þristum tveimur frá Jay Threatt og einum til frá Sveini Arnari og staðan varð 60-59 fyrir Snæfell. Asim McQueen var kominn með sína fjórðu villu um miðjan þriðja hluta og var hvíldur. Jay Threatt var kominn með 22 stig þarna og Broussard 18 stig. Grindavík komst yfir 70-71 eftir að tæknivilla var dæmd á Snæfellsbekkinn. Staðan var 72-75 fyrir Grindavík en liðin voru að spila af hörku og í boði úrlitaleikurinn í Lengjubikarnum.

 

Liðin skiptust á að skora og skiptust á forystu og staðan 80-81 fyrir suðurnesjamenn um miðjan fjórða hluta þegar Jón Ólafur hjá Snæfelli fékk sína 5 villu fyrir lítið og Asim McQuenn fylgdi honum hálfri mínútu síðar og tveir miklvægir póstar komnir út hjá Snæfelli. Þorleifur Ólafs fékk reisupassann einnig en leikurinn var virkilega hressandi og rafmagnaður með 89-85 á klukkunnu fyrir Snæfell þegar 2.30 voru eftir. Snæfell komst í 93-86 þegar 43.5 sekúndur voru eftir og allt féll þeim í hendur og Snæfell sigldi sterkum lokamínútum í höfn 99-90 og leika gegn Tindastóli í úrslitaleiknum.

 

[mynd]

 

”Það sýndi sig mjög vel eftir að við misstum Nonna Mæju og Asim útaf með fimm villur hvað liðsheildin var sterk hjá okkur og að fá bræðurnar frá 603 Akureyri af bekknum og þá náum við að halda þeim mjög vel.” segir Hafþór Ingi Gunnarsson hjá Snæfelli og talar þar um bræðurna Ólaf og Stefán Torfasyni. ”Við náðum að halda þeim í mjög fáum stigum síðustu fjórar fimm mínúturnar og Jay var að spila mjög vel og það klárar leikinn. Það var svolítil yfirspenna í mönnum í byrjun, fullt hús og svona en svo er verið að spila um bikar, það er bikarleikur á morgun” Snæfell mætir Tindastóli og verður það án efa hörkuleikur á milli landsbyggðarjötnanna. ”Tindastóll eru líkamlega sterkir og við munum þurfa að mæta tilbúnir, tilbúnari en í dag”

Jóhann Árni hjá Grindavík var vonsvikinn eftir leikinn. ”Þetta var að mínu mati bara einn punktur í lokin þar sem við hefðum getað farið niður í tvö stig og áttum að fá villu að mínu mati en í staðinn fá þeir sniðskot og skora og komnir sex stigum yfir. Við þurfum þá að fara í að elta og brjóta sem er erfitt og við eigum ekkert að þurfa að fara í þetta að treysta á heppni í lokin. Miðað við hvernig við vorum að spila sóknarlega vitandi að þeirra tveir sterkustu menn væru komnir útaf með fimm villur snemma í fjórða hluta þá áttum við að ná að stjórna þessu betur.” Grindavík byrjaði 2-14 og voru snöggir til í upphafi þar sem Jóhann Árni setti niður 10 stig sen það jafnaðist fljótt út eftur fyrsta fjórðung. ”Það er ekkert voðalega vænlegt hérna í Stykkishólmi að vera að skiptast á körfum við þá út leikinn , við þurfum að stoppa þá og leggja allt í vörnina sem við vorum ekki að gera í dag”

Umfjöllun og viðtöl: Símon B. Hjaltalín.
Myndir: Eyþór Benediktson