Jón Ólafur aka Nonni Mæju, heima einn vetur enn

Það þarf ekkert að fara frekar í saumana á hversu mikilvægur Nonni er okkar liði og hefur verið. Það var okkur þess vegna mikið í mun að halda í kappann innan okkar raða eitt tímabil til og var vilji beggja að skrifa undir slíkann pappír.

Ánægjulegt að halda góðum kjarna liðsins og bæta við Kristjáni Pétri enn sem komið er en eins og flestir vita verður reglan 4+1 í gildi næsta tímabil og því einungis hægt að spila með einn erlendan leikmann inná í einu.