Finnur Atli og Guðrún Gróa í Snæfell.

Heilmikið havarí var á Hótel Stykkishólmi þegar endurnýjaðir voru leikmannasamningar við marga af þeim leikmönnum sem leikið hafa með karla og kvennaliði Snæfells síðustu ár. En rúsínan í pylsuendanum voru svo tvær nýjar undirskriftir frá Finni Atla Magnússyni og Guðrúnu Gróu Þorsteinsdóttur sem ætla að styrkja Snæfellsliðin í vetur……

Heilmikið havarí var á Hótel Stykkishólmi þegar endurnýjaðir voru leikmannasamningar við marga af þeim leikmönnum sem leikið hafa með karla og kvennaliði Snæfells síðustu ár. Fyrir utan Jón Ólaf og Kristján Pétur sem skrifuðu undir nýverið hafa Pálmi Freyr, Hafþór Gunnarsson og Stefán Karel skrifað undir.
Sigurður Þorvaldsson, Jóhann Kristófer og Óttar Sigurðsson skrifuðu undir í kvöld.

 

[mynd]

 

Í kvennaliðinu skrifuðu allmargar undir, en þær sem voru síðasta tímabil skrifuðu næstum allar undir í dag. Hildur Sigurðardóttir, Hildur Björg, Alda Leif, Berglind Gunnarsdóttir, Helga Hjördís, Aníta Rún, Rebekka Rán og Silja Katrín voru allar á síðasta tímabili og verða áfram.

 

[mynd]

 

[mynd]

 

Þegar heilmiklar endurnýjanir á samningum voru búnar var komið að tveimur nýjum leikmönnum að skrifa undir. Finnur Atli Magnússon og Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir hafa ákveðið að leika með Snæfelli komandi tímabil og fögnum við mjög slíkum styrk sem við fáum í okkar lið. Bæði koma þau frá KR og hafa verið lykilleikmenn í sínum liðum þar.

 

Finnur Atli hefur farið mikinn í teig andstæðinga og hafa Snæfellingar fengið sinn skammt frá honum en nú söðlar hann útá land. Finnur Atli var með 11.4 stig og 5.4 fráköst að meðaltali í 28 deildarleikjum fyrir KR síðasta tímabil og mikill styrkur í miðherjastöðuna.

„Mig langaði að breyta til og prófa eitthvað nýtt, Ingi bauð mér góðan samning og ef ég ætlaði einhverntíma að prófa að breyta til þá var tíminn núna. Ég þekki flesta strákana mjög vel og þá sérstaklega Nonna Mæju. Við höfum verið í ýmsum leiðindum inni á vellinum en erum mjög góðir félagar fyrir utan. Það er spennandi að flytja út á land, eins og sagt er, í einn fallegasta bæ á landinu. Bróðir minn [Guðmundur Magnússon] þekkir alla króka og kima hérna og formanninn nokkuð vel en svo vill ég auðvitað líka fara í lið sem er að berjast um titla og ég geri sömu kröfur á Snæfell eins og hjá KR að sækja alla titla sem í boði eru.“

Guðrún Gróa er einn af bestu varnarmönnum kvennadeildarinnar og virkilega mikill styrkur í liðið með mikla reynslu og titla á bakinu úr vesturbænum. Guðrún var með 8,2 stig og 7.5 fráköst að meðaltali í 35 deildarleikjum síðasta vetur hjá KR.

 

„Ég var algjörlega óákveðin í hvað ég ætlaði að gera, klára skóla í haust eða gera eitthvað allt annað kannski og þetta hljómaði virkilega spennandi. Það er gaman að prófa eitthvað nýtt, viðkunnalegur staður, alltaf gaman að koma hingað og svo þekki ég Inga Þór og Hildi Sigurðardóttir mjög vel ásamt því að kannast við hinar stelpurnar. Þetta er bara allt annar pakki en ég verið í og er mjög heillandi.“

 

-sbh-

 

[mynd]