Jamarco að lenda í Hólminum
Snæfell hefur samið við bandaríska körfuknattleiksmanninn Jamarco Warren sem kemur úr Charleston Southern háskólanum. Jamarco lauk námi 2011 og hefur síðan leikið í sumardeildum og einnig ferðast með liði til Japans.
Jamarco er um 177 sentímetrar á hæð og er leikstjórnandi sem á sínu lokaári var með 17.8 stig að meðaltali í leik, 3 fráköst og 2.8 stoðsendingar.
Jamarco er á leið til landsins og verður klár í slaginn þegar að Snæfell mætir ÍR-ingum næstkomandi föstudag klukkan 19:15 í Hertz-hellinum í Lengjubikarnum.
Tags: Fréttir