Bíó-sýning í Hólminum!
Mynd sem enginn ætti að láta framhjá sér fara! Það er ekki á hverjum degi sem gerðar eru heimildarmyndir um íslenska körfuboltamenn.
Heimildarmynd um Örlyg Sturluson – mynd sem allir ættu að sjá!!!
Myndin verður sýnd á Hótel Stykkishólmi laugardaginn 21. september klukkan 20:00.
Aðgangseyri aðeins 1000 kr.
Sjoppa verður á staðnum.
Myndin rekur feril Örlygs og gefur áhorfandanum tækifæri á að kynnast þessum einstaka dreng í gegnum vini hans, þjálfara, mótspilara og ættingja. Örlygur var glæsilegur og hæfileikaríkur drengur sem átti framtíðina fyrir sér þegar hann kvaddi okkur skyndilega.
Tags: Fréttir