Tap á móti mjög sterku KR-liði
Karlalið Snæfells spilaði við KR í lokaleik D-riðils í Lengjubikarnum
Fyrir leikinn var staðan þannig að KR voru efstir með 10 stig en Snæfell í öðru sæti með 8 stig, Snæfell hefði þurft að vinna leikinn með 3 stigum til að ná efsta sætinu af KR-ingum. Það gekk ekki eftir og er 2. sætið því staðreynd og útileikur á móti Stjörnunni á þriðjudaginn 24. september.
Leikirnir í 8-liða úrslitunum:
Stjarnan – Snæfell 19:15
Keflavík – Þór Þ. 19:15
Njarðvík – Grindavík 19:15
KR – KFÍ 20:00
Undanúrslit og úrslit eru spiluð í Njarðvík um næstu helgi (föstudag og sunnudag)
Allir á völlinn!
Áfram Snæfell
Umfjöllun um leikinn má finna hérna: http://karfan.is/read/2013/09/22/kr-ingar-taplausir-a-toppnum
Einnig er NBA-Ísland með umfjöllun og myndir frá leiknum: http://nbaisland.blogspot.com/2013/09/etta-er-byrja.html