Breytingar á karlaliðinu
KKD. Snæfells hefur leyst Vance Cooksey undan samningi. Hann þótti ekki falla inn í aðstæður félagsins og náði ekki nægilega vel til liðsmanna félagsins.
Félagið þarf nýtt blóð og stendur leit yfir að arftaka Cooksey. Það mun skýrast á næstu dögum hver verður hinn nýji erlendi leikmaður Snæfells.
Við vonumst til að þessi breyting verði til góðs og liðið taki við sér í heild sinni.
Áfram Snæfell