Kristján Pétur ekki með í Þorlákshöfn

Kristján Pétur ekki með í Þorlákshöfn

Kristján Pétur hefur verið að glíma við eymsli í fæti og fór í sprautumeðferð í gær. Hann verður því ekki klár fyrir leikinn á föstudaginn. Hann mun byrja að æfa eftir helgina. Kristján mun þá ásamt Finn Atla vera á handklæðinu og hjálpa strákunum að vinna Þór Þ. þetta eru ekki góðar fréttir úr herbúðum Snæfells en góðu fréttirnar eru að þessi meiðsli þeirra félaga eru komin í ljós og hægt er að ýta þeim út af borðinu sem fyrst. Aðrir leikmenn liðsins sem hafa verið meiddir eru að skríða saman og eru að ná fyrri styrk. Við bindum miklar vonir við að liðið okkar verði komið á gott ról í deildinni eftir nokkrar vikur. Þetta hefst allt með góðum og sterkum hóp, sem við teljum okkur vera með.

Áfram Snæfell