RISALEIKIR í vikunni

RISALEIKIR í vikunni

Það verður sannkölluð veisla í vikunni. Tveir RISA leikir!

Stelpurnar byrja veisluna á því að fá Val í heimsókn (strax eftir þann leik spilar unglingaflokkur kvenna einnig við Val).
Strákarnir eiga svo stóran möguleika á því að koma sér vel fyrir í 8. sætinu en til þess þarf sigur og ekkert annað!
Komdu og taktu þátt í þessari veilsu með okkur. Það er ekki í hverri viku sem haldnar eru veislur, hvað þá í miðri viku.

Áfram Snæfell

ÍR – Snæfell <--- (ýttu á linkinn til að sjá myndband) Nonni Mæju var með sýningu. ÍR-ingar eru með mikið breytt lið síðan við spiluðum við þá. Þeir eru eitt heitasta lið deildarinnar núna og stefna á að ná úrslitakeppnissætinu af okkur. Eitthvað sem okkar menn eru ekki tilbúnir að samþykkja.