Sigur í kvöld = Deildarmeistarar!

Sigur í kvöld = Deildarmeistarar!

Stelpurnar geta með sigri í kvöld orðið Deildarmeistarar í fyrsta sinn í sögu félagsins. Það verður að kallast frábær árangur að geta lokað deildarkeppninni þegar 4 leikir eru eftir. Stelpurnar eru því með þetta í sínum eigin höndum. Haukar eru þær einu sem geta náð Snæfell að stigum. En til þess þurfa þær að vinna rest og Snæfell tapa restinni af leikjunum í deildinnni. Ef hins vegar bæði lið tapa í kvöld verða Snæfellssetelpurnar einnig deildarmeistarar.

Við vonumst til að sjá sem flesta í Hveragerði í kvöld. Stelpurnar ætla sér ekkert annað en sigur sem yrði þeirra tólfti í röð.
Hamar-TV virðast ætla að sýna frá leiknum í kvöld, þannig ef þú hefur ekki tök á því að mæta þá getur þú stillt þar inn.

Ýttu hérna til að fara á Hamar-TV

Það eru fleiri leikir í deildinni í kvöld:
Domino´s deild kvenna
15:00 Valur – Keflavík
19:15 Hamar – Snæfell
19:15 Njarðvík – KR
19:15 Grindavík – Haukar

Áfram Snæfell!