FORSALAN KLÁRAST Á MORGUN (fim)
Nældu þér í miða hjá Stjórn Snæfells.
Félagið fær allan miðann sem er keyptur í forsölu. Ef þú stuðningsmaður góður kaupir t.d. hjá miði.is eða við innganginn mun Snæfell aðeins fá smá part af hverjum miða.
Miði í forsölu kostar 1500 kr.
Við hvetjum því alla Hólmara og Snæfellinga að kaupa miða í íþróttamiðstöðinni í Stykkishólmi (afgreiðslunni).
Ef þú ert ekki í Hólminum getur þú pantað miða hjá [email protected] eða [email protected] og fengið hann afhentan á leik Vals og Snæfells (karlaleiknum) á fimmtudaginn í Vodafonehöllinni, sá leikur byrjar stundvíslega klukkan 18:00.
Allir í höllina!
Söngtextar verða á staðnum…
Áfram Snæfell