Stóra stundin nálgast…

Stóra stundin nálgast…

Örfáir klukkutímar eru nú í að Stelpurnar stíga á stóra sviðið. Undirritaður er að verða gríðarlega spenntur og svitnar við tilhugsunina um að leikurinn fari að byrja. Stelpurnar tóku æfingu í gær í Höllinni og ættu að vera búnar að finna fjalirnar sínar.

Ég skora á alla Hólmara, Snæfellinga, Grundfirðinga, Ólsara, Sandara og Rifsara að koma með okkur í stuðningsliðið og hvetja stelpurnar til sigurs.
Haffi Gunn er búinn að semja texta stelpunum til heiðurs og munum við í mfl. karla syngja og tralla allan leikinn. Ertu með?
Mætum í hvítu eða kaupum bol hjá Strákunum í stjórninni á 1500 kr. – bolirnir verða til sölu í Höllinni. Leikurinn byrjar eins og allir vita klukkan 13:30 – ef þig langar í stæði á góðum stað, þá er mjög gott að mæta 30-45 mínútum fyrir leik. Fyrir þá sem alls ekki komast í Höllina þá er leikurinn sýndur á RÚV.

Hvernig væri að fá BIKARINN í HÓLMINN?!?!?

Áfram SNÆFELL!

Gulli Smára