Snæfell sendir 9 lið

Snæfell sendir 9 lið

Það verður sannkölluð veisla í Reykjanesbæ um þessa helgi. Nettómótið er á dagskrá og er það flottasta „fyrirtækjamótið“ segja krakkarnir.
Snæfell sendir að þessu sinni 9 lið til leiks það eru 48 krakkar í heildina sem er frábær þátttaka.

Við bendum foreldrum og öðru áhugafólki á síðuna um nettómótið, þar færðu allar upplýsingar sem þú þarft um mótið. Við óskum öllum okkar keppendum og foreldrum góðrar skemmtunnar um helgina og megi framtíðar leikmenn Snæfells brillera og leggja sig hart fram á mótinu.

Framtíðin er ykkar,
Áfram Snæfell