Haukar – Snæfell á morgun

Haukar – Snæfell á morgun

Stelpurnar fara í Schenkerhöllina á morgun og spila við Hauka. Þessi leikur er frábær upphitun fyrir úrslitakeppnina.

Stelpurnar fá annað hvort Val eða Hamar í undanúrslitum, þau lið spila einmitt á móti hvort öðru sama dag.
Það verður því gaman að fylgjast með því hvort liðið fer með sigur af hólmi.
Eftir leiki morgundagsins er aðeins ein umferð eftir þannig línurnar gætu skýrst annað kvöld, með sigri Vals. Ef Hamar vinnur jafna þær Val að stigum og fara upp fyrir þær á hagstæðari úrslitum úr innbyrðis viðureignum, Hamar hefur unnið allar þrjár viðureignirnar til þessa.

Það verður því gríðarleg spenna á morgun!
Áfram Snæfell

(ef þú tókst ekki eftir því, þá getur þú séð live-stattið beint af www.snaefell.is – hérna hægra megin)