Mikilvægur leikur á morgun!

Mikilvægur leikur á morgun!

Strákarnir fá Ísfirðinga í heimsókn á morgun. Það þarf varla að segja fólki frá mikilvægi leiksins. Með sigri halda Strákarnir í 8. sætið og gætu jafnvel farið í 7. tapi Stjarnan sínum leik. Með tapi getum við misst ÍR-inga upp fyrir okkur og þá dottið úr úrslitakeppnissæti í bili.

Málið er að Strákarnir okkar ætla sér ekkert að láta þetta sæti eftir neinum og eru staðráðnir í því að mæta í búning í úrslitakeppnina þegar hún hefst.
Við hvetjum því alla Hólmara, Snæfellinga og auðvita vini okkar á Snæfellsnesinu að taka saman höndum og rífa stemmninguna í gang með strákunum.

Úrslitakeppnin er það sem allir stefna á og það er ekki í boði að missa af henni.
Gerum þetta saman! Áfram Snæfell!!!