Síðasti deildarleikurinn hjá Stelpunum!

Síðasti deildarleikurinn hjá Stelpunum!

Stelpurnar fá Keflavík í heimsókn og geta með sigri unnið sinn 16 leik í röð ef ég man rétt, hver er svo sem að telja.
Að þessum leik loknum byrjar alvaran, sjálf úrslitakeppnin. Leikdagar og annað slíkt verður auglýst betur að leik loknum hérna á heimasíðunni.

Við viljum hvetja stuðningsfólk Snæfells að fjölmenna á leikinn og hjálpa stelpunum að sigra Keflavík. Stuðningurinn hefur verið frábær í vetur og eru Stelpurnar að spila sitt besta tímabil í sögu Snæfells. Komdu og leggðu þitt af mörkum í að gera söguna ennþá lengri og skemmtilegri.

Áfram Snæfell!!