Leikur 3 á morgun!

Leikur 3 á morgun!

Það er ekki mikil pása á milli leikja hjá stelpunum, næsti leikur er á morgun (miðvikudag). Það er varla að maður nái að búa til auglýsingar á milli leikja. Að sjálfsögðu viljum við hafa nóg að gera í þessari fallegu íþrótt okkar.

Það bætist enn á meiðslalistann hjá Snæfelli, Aníta Rún Sæþórsdóttir fór í aðgerð í vikunni á hné og er frá keppni. Hópurinn er því alltaf að þynnast en það kemur í ljós hvernig bati Chynnu Brown verður eftir daginn. Við vonum það besta, en liðið sýndi í gær að þær eiga fullan sjéns á því að vinna kanalausar. Hugrún Eva er frá og verður klárlega ekki með á morgun.

Stöppum stáli í liðið okkar og mætum í stúkuna með læti og stemmningu!

Áfram Snæfell