Hugrún frá í 4 – 6 vikur

Hugrún frá í 4 – 6 vikur

Hugrún Eva hefur fengið niðurstöður úr segulómskoðun og kom í ljós að krossbönd, liðbönd og liðþófar eru ósködduð. Hinsvegar er tognuð á liðböndum og aftari krossböndum og bólga í beini eftir höggið sem hún fékk.

Hugrún mun hefja sjúkraþjálfun á mánudag og verður að öllum líkindum frá keppni í 4-6 vikur. Þetta eru ánægjuleg tíðindi þar sem Hugrún og Snæfellsfólkið var búið að undirbúa sig undir krossbandaslit.

Við sendum Hugrúnu bata kveðjur og baráttu kveðjur á allar stelpurnar fyrir leikinn í kvöld!
Áfram Snæfell