Oddaleikur!

Oddaleikur!

Það er algjör skyldumæting í stúkuna á morgun þegar Stelpurnar okkar spila oddaleik við Val um þátttöku í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn sjálfan. Þar bíða Haukar í makindum sínum enda löngu búnar að rúlla Keflavík upp.

Hópumst saman í stúkunni og höfum læti. Ég hef uppi grunsemdir að mfl. karla ætli að styðja vel við bakið á Stelpunum!
Sjáumst á morgun (þriðjudaginn 25. mars) í íþróttahúsinu í Stykkishólmi.

Áfram Snæfell