Leikur 2 á morgun!
Það er gríðarlega mikilvægur leikur á morgun (miðvikudag) í Hafnarfirði. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og er spilaður á Ásvöllum, heimavelli Hauka.
Stelpurnar unnu fyrsta leikinn í seríunni og langar rosalega að koma sér í góða stöðu á morgun. Haukar eru hins vegar allt annað en tilbúnar í að láta það eftir okkur. Þetta verður því stál í stál eins og það á að vera í úrslitarimmunni.
Stuðningsfólk Snæfells!
Við viljum sjá ykkur sem flest á leiknum til að hvetja stelpurnar okkar áfram. Látum drauminn koma einu skrefi nær.
Heyrst hefur að Stuðningsmannaklúbburinn Hermundur ætli að mæta í öllu sínu veldi með fána, söngva og læti í farteskinu.
Mikið rosalega verður þetta gaman.
Ert þú með?
Áfram SNÆFELL!!!