http://snaefell.is/wp-content/uploads/2014/05/Happdrætti-KKD-copy-Snæfells-2014.jpegHappdrætti KKD. Snæfells

Happdrætti KKD. Snæfells

Körfuknattleiksdeild Snæfells stendur fyrir happdrætti þessa dagana, vinningarnir eru glæsilegir að þessu sinni.
Það eru alls 72 vinningar og er heildarverðmæti 690.000 kr. sem hlýtur að teljast gott.

Miðinn kostar 1000 kr.

Útgefnir voru 2000 miðar og einungis er dregið úr seldum miðum.
Það verður dregið 26. maí 2014 og verða vinningsnúmer birt hérna á heimasíðu Snæfells.

Ef þú hefur áhuga að ná þér í miða – hafðu þá sambandi við Inga Þór s. 860-1885,
netfang: ingithor72@gmail.com
Auk þess er hægt að hafa samband við leikmenn, þjálfara og stjórnarmenn KKD. Snæfells.

Ekki láta þetta framhjá þér fara…
Með fyrirfram þökk,
KKD. Snæfells

Áfram Snæfell
Happdrætti Snæfells