Undirskriftir hjá Mfl. kvenna

Undirskriftir hjá Mfl. kvenna

 

Í gær skrifuðu fimm leikmenn undir samning hjá Deildar- og Íslandsmeisturum Snæfells. Engin ný nöfn til þessa en mikilvægt er að halda í stelpurnar sem skipuðu liðið á síðasta tímabili.

Þær sem skrifuðu undir voru Hildur Sigurðardóttir og mun hún ljúka sínum frábæra ferli í Hólminum, Hugrún Eva Valdimarsdóttir, Aníta Rún Sæþórsdóttir, Rebekka Rán Karlsdóttir og Silja Katrín Davíðsdóttir. Stjórn og þjálfarar eru gríðarlega ánægðir með að fá að hafa stelpurnar í herbúðum Snæfells á næsta tímabili.

Meðfylgjandi myndir eru frá undirskriftunum í gær.

Til hamingju stelpur
Áfram Snæfell