Fjölnir – Snæfell í kvöld!
Strákarnir eru rétt í þessu að leggja í hann til Reykjavíkur, þeir munu etja kappi við Fjölni í kvöld klukkan 19:15.
Þetta er fyrsti leikur Óla Ragnars og einn af fjölmörgum í Snæfellsbúningnum. Við hittum einnig gamla og góða vini okkar í Grafarvoginum, Óli Torfa og Emil Þór spila með þeim Gul/bláu, alltaf gaman að hitta góða félaga.
Með sigri komumst við aftur í 50% vinningshlutfall og hoppum upp um 2-3 sæti, en Fjölnismenn eru engin lömb að leika sér við og munu án efa selja sig dýrt, leikurinn í kvöld er því mjög mikilvægur og verður örugglega fínasta skemmtun.
Við hvetjum stuðningsfólk Snæfells að fjölmenna á leikinn og hjálpa strákunum að byrja árið með góðum sigri.
Leikurinn er einnig sýndur á ——-> Fjölnir Tv <------ ýttu hér til að sjá leikinn.