Njarðvíkingar sterkari í kvöld

Njarðvíkingar sterkari í kvöld

Snæfell fékk Njarðvík í heimsókn í Dominosdeild karla. Fyrri leikur liðanna fór 98-83 fyrir fyrir Njarðvík. Hver leikur mikilvægur þegar síga fer á deildarkeppnina og úrslitakeppni nálgast, Snæfell fyrir leikinn í 9. Sæti með 16 stig og því ekki með ef úrslitakeppni hæfist í dag en Njarðvík í 4. Sæti með 20. Stig og sjá allir að stutt er á milli hláturs og gráturs.

Þau klikkuðu ekki mörg skotin á fyrstu skrefum leiksins og eftir jafnar tölur kom Logi Njarðvík í 6-7 með góðum þrist eftir stoðsendingu Stefan Bonneau en Austin Bracey kom svo Snæfelli yfir aftur með einum slíkum 11-9 og þannig kraumaði kakan í upphafi. Snæfellingar náðu að komast yfir 19-16 en jafnræði var í leik liðanna og Njarðvík leiddi 19-23 eftir flautuþrist frá Ágústi Orrasyni.

Snæfellingar hittu illa úr teig og stökkskotum sínum en Sveinn Arnar bætti úr stigaþurðinni með spjaldþrist og kallaði það ekki einu sinni. Njarðvík áttu leiddu 25-32 þegar Logi Gunnars bætti í 25-35 og ógnir Snæfells ekki nægilega sterkar sem og vörnin sem þurfti að bæta í og féllu oft í þá gryfju að gefa körfu með vítaskoti til. Þetta gaf Njarðvík gott svigrúm í sínum leik og settu þeir upp góðann varnarleik og stoppuðu Snæfell æði oft sem gestirnir nýttu í kringum 10 stiga forystu yfir annan fjórðung og voru svo komnir í gírinn rétt fyrir hálfleikinn 34-52.

Hjá Snæfelli voru menn ekki á tánum og skrefi eða tveimur á eftir. Stigahæstir voru þar Stefán Karel og Sigurður Þorvaldsson með 8 stig hvor og Chris Woods næstur þeim með 7 stig. Í liði Njarðvíkur var Stefan Bonneau kominn með 16 stig, 7 fráköst og 4 stoðsendingar sem næstum því allar gáfu þrista. Hjörtur Hrafn og Logi Gunnars voru með 11 stig hvor.

Að rota eða steinrota er orðatiltæki skemmtilegt en það má eiginlega nota á leik Njarðvíkur í upphafi seinni hálfleik en þeir skoruðu þá 10 stig í röð eftir fyrstu tvö Snæfells 36-62 áður en Ingi Þór brá á það ráð að taka cher tíma í skraf og ráðagerðir. Hjörtur Hrafn bætti strax við þremur og áhlaup grænna orðið, 13-0 sem sagt steinrota. Þrjátíu stiga forystan var rofin með 2 stiga lay-up frá Oddi Birni 40-71 og það var einfaldlega frábært að sjá leik Njarðvíkur sem spilaði flottann leik og voru ferskir. Á meðan létu Snæfellingar mótlætið fara í sig líkt og í síðasta leik og sýndu pirring og tuð. Logi þristur, Ágúst þristur og Snorri tvö í lay up og þar með 8-2 á augabragði sýndi í hvað stefndi út leikinn og staðan 47-81 fyrir lokafjórðunginn.

Snæfellingar náðu að saxa dálítið niður í 20 stig og pressuðu alltaf við innkast Njarðvíkinga, staðan var 68-88 þegar tæpar fimm mínútur voru eftir. Var þetta of seint­ spurðu menn sig í stúkunni og svarið á þessum tímapunkti já, Njarðvíknigar lögðu grunninn að góðum sigri sínum í Hólminum snemma í leiknum, Stefan Bonneau 1 stoðsendingu frá þrennunni með 35/10/9. Snæfellingar áttu hins vegar aldrei möguleika eftir það. Sannfærandi og öruggur 79-101 sigur Njarðvíkur í Hólminum þetta kvöldið.

Snæfell: Chris Woods 20/12 frák. Sigurður Þorvaldsson 17/6 frák. Austin Bracey 17/4 frák. Stefán Karel 10/9 frák. Sveinn Arnar 7. Pálmi Freyr 5. Sindri Davíðsson 2. Óli Ragnar 1. Snjólfur Björnsson 0. Jóhann Kristófer 0.

Njarðvík: Stefan Bonneau 35/10 frák/9 stoðs. Logi Gunnarsson 14/5 frák/4 stoðs. Hjörtur Hrafn 14. Ágúst Orrason 6. Mirko Stefán 6/ 13 frák. Snorri Hrafnkelsson 5. Oddur Birnir 4. Magnús Már 4. Ólafur Helgi 2. Jón Arnór 0. Ragnar Helgi 0.

Símon B Hjaltalín.