Tveir leikir í vikunni

Tveir leikir í vikunni

Kvennalið Snæfells fær Hauka í heimsókn á morgun og karlalið Snæfells fer í Breiðholtið á fimmtudaginn, báðir leikirnir byrja á slaginu korter yfir sjö!

Nú fer hver að verða síðastur til að tryggja sig inn í úrslitakeppnina. Stöndum þétt við bakið á okkar liðum og myndum brjálaða stemmingu á heima- og útileikjum Snæfells. Karlaliðið er sem stendur í pakka þar sem öll lið geta dottið úr úrslitakeppnissæti.
ÍR hins vegar eru að berjast fyrir sæti sínu í deildinni og verða því klárir í leikinn.

Sjáumst á vígvellinum!!!
Áfram Snæfell