Anna Soffía í U-16

Anna Soffía í U-16

Anna Soffía Lárusdóttir hefur verið valin í 12 manna hóp U-16 landsliðs Íslands, glæsilegt hjá henni. Hún mun fara með liðinu á Norðurlandamótið 2015 sem fram fer í Solna í Svíþjóð dagana 13.-17. maí. Þar mun hún hitta þjálfara meistaraflokka Snæfells hann Inga Þór, hann er þjálfari U-16 liðs drengja.

Snæfell á því leikmann og þjálfara á mótinu í maí, við hlökkum til að fylgjast með þeim.

Innilega til hamingju Anna Soffía og Ingi Þór.

Áfram Snæfell